Uppsetning í Outlook (Mac)

Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að setja upp tölvupóst í Mac Mail með IMAP fyrir þá sem nota hefðbundna póstþjónustu Dacoda.

  • Opna Mac Mail
  • Velja Add Other Mail Account og smella á Continue

  • Í næsta glugga skal skrá fullt nafn, netfanglykilorð og smella á Create
  • Ef glugginn birtist aftur með skilaboðunum "Account must be configured manually" þarf að smella aftur á Create hnappinn til að komast í næsta skref.

  • Setjið inn eftirfarandi upplýsingar í Incoming Mail Server Info:
  • Account type: IMAP
  • Mail Server: mail.”þitt domain”  -   (þar sem "þitt domain" er endirinn á netfanginu þínu s.s domainið þitt t.d mail.dacoda.is)
  • User Name: Netfangið þitt
  • Password: Lykilorð fyrir netfangið þitt
  • Ýtið á Next

  • Setjið inn eftirfarandi upplýsingar í Outgoing Mail Server Info:
  • SMTP: mail.”þitt domain”  -  (þar sem "þitt domain" er endirinn á netfanginu þínu s.s domainið þitt t.d mail.dacoda.is)
  • User Name: Netfangið þitt
  • Password: Lykilorð fyrir netfangið þitt
  • Ýtið á Create
  • Ef glugginn birtist aftur með villuskilaboðum skal smella aftur á Create.

  • Breytið Port í 465 og passið að stillingar séu eins og á myndinni fyrir neðan. Smellið svo á Create til að stofna netfangið í Mac Mail.

  • Nú er netfangið tilbúið til notkunar

Still need help? Contact Us Contact Us